Með samkomulaginu sem skrifað var undir í dag samþykkti BSO að falla frá dómsmáli sem stöðin höfðaði gegn bænum. Í staðinn ætlar Akureyrarbær að greiða BSO fyrir afnot af húsinu um óákveðinn tíma. Húsnæðið verður hugsað sem æfingahúsnæði fyrir viðbragðsaðila á Akureyri.Húsið stendur á lóð við Strandgötu í miðbænum á Akureyri og vildu leigubílstjórar meina að þeir ættu óuppsegjanlegan og ótímabundinn lóðarrétt þar. Þeir stefndu bænum en dómnum var vísað frá á grundvelli stjórnarskrárlaga í héraðsdómi. Landsréttur vísaði málinu aftur í hérað og þar við sat þangað til nú.BSO víkur því endanlega úr húsinu þann 1. maí næstkomandi en fær þó eitthvað fyrir sinn snúð. Að sögn bæjarstjóra Akureyrarbæjar, Ásthildar Sturludóttur, er hún ánægð með niðurstöðuna og þessa farsælu lausn. Ekki er komið í l