Ekki verður lengur boðið upp á unnar kjötvörur í skólum Reykjavíkurborgar verði tillaga meirihlutans í borgarstjórn samþykkt. Minnihlutinn kalla tillöguna forræðishyggju en meirihlutinn vísar til þess að unnar kjötvörur séu í dag flokkaðar með áfengi og tóbaki og séu krabbameinsvaldandi.