Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokið rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri í mars og málið er á borði ákærusviðs. Þetta segir Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.„Væntanlega verður sú ákvörðun tekin fljótlega,“ segir Skarphéðinn.Fleiri en einn eru með stöðu sakbornings en Skarphéðinn sagði ekki unnt að greina frá því hve margir þeir eru að svo stöddu. Rætt hafi verið við þó nokkra við rannsóknina.„Við lítum það alltaf alvarlegum augum þegar við fáum tilkynningar um kynferðisbrot.“DV greindi frá því í mars að þrír menn væru grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri og sagði brotin hafa verið framin á hóteli í miðbæ Akureyrar.