Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur. Innstreymi kviku er hægt en stöðugt, að því er fram kemur í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands.Samkvæmt líkanreikningum hafa um 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Þetta er mesta magn sem mælst hefur frá upphafi eldvirkninnar á Sundhnúksgígaröðinni.Meðan kvika safnast áfram fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina. Það gæti leitt til eldgoss.Samkvæmt Veðurstofunni þarf að gera ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.