Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Múte B. Egede nýr utanríkisráðherra Grænlands

Múte B. Egede verður nýr utanríkisráðherra Grænlands. Þetta tilkynnti Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, í dag. Vivian Motzfeldt gegndi embættinu þar til flokkur hennar, Siumut, sagði sig úr stjórn landsins í mars. Eftir það sagði hún skilið við flokkinn. Hún hafði staðið í ströngu eftir hótanir Trumps Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland. Egede kemur úr stjórnmálaflokknum Inuit Ataqatigiit og gegndi embætti formanns landsstjórnar frá 2021 til 2025. Mute B. Egede, nýr utanríkisráðherra Grænlands.EPA-EFE / Ritzau Scanpix
Múte B. Egede nýr utanríkisráðherra Grænlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta