Sigurður Grétar Jónasson rafvirki er oddviti Íbúalistans í Stykkishólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Íbúalistinn bauð fram í kosningum fyrir fjórum árum og hlaut þrjá af sjö bæjarfulltrúum. Listinn hefur verið í minnihluta á kjörtímabilinu.Rannveig Tenchi Ernudóttir, kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur, skipar annað sæti listans og Kristján Hildibrandsson, grunnskólakennari og varabæjarfulltrúi, það þriðja.