Kosning utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga í vor hefst hjá sendiráðum, aðalræðisskrifstofum og kjörræðismönnum Íslands á föstudag. Þá geta Íslendingar erlendis byrjað að kjósa til sveitarstjórna.Kjörstaðir verða í öllum sendiskrifstofum Íslands erlendis, nema hjá fastanefnd Íslands hjá NATO, í aðalræðisskrifstofunum í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk og hjá kjörræðismönnum.Kjósendur þurfa að framvísa skilríkjum til að geta kosið og þeir bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Fólk þarf að senda atkvæði sitt beint á það sveitarfélag þar sem það er með skráð lögheimili.Kjósendur erlendis geta ekki sett kjörseðilinn í kjörkassa heldur verða þeir að senda hann í pósti.RÚV / Ragnar Visage