Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

500 bleikjur sluppu úr landeldisstöð

Eldisfiskur slapp úr landeldisstöð Matorku að Húsatóftum við Grindavík. Rist á útfalli eldiskers gaf sig vegna tæringar og því komst fiskurinn með útfalli úr kerinu og í sjó.Matorka telur að um 500 fiskar hafi sloppið og að þeir séu um 600 grömm að þyngd að meðaltali. Fiskarnir eru aldir í kerjum í landi. Stjórnendur fyrirtækisins telja ekki miklar líkur á að bleikjan geti lifað í fullsöltum sjó.Í tilkynningu á vef Matvælastofnunar kemur fram að Matorka hafi tilkynnt strok á bleikju á laugardagsmorgunn. Þar segir að fyrirtækið hafi þegar virkjað viðbragðsáætlun vegna stroks. Ástand annarra kerja var skoðað.
500 bleikjur sluppu úr landeldisstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta