Heildarrekstrarkostnaður sendiskrifstofa jókst um rúmlega 472 milljónir króna milli áranna 2023 og 2025. Kostnaður milli einstakra ára jókst einna mest við rekstur sendiskrifstofanna í Brussel og Peking þar sem samanlagður kostnaðarauki var um 175 milljónir á þessu tímabili. Þetta kemur fram í svari Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við fyrirspurn Ingibjargar Davíðsdóttur þingmanns Miðflokksins.Þorgerður Katrín gerir ráð fyrir því að heildarrekstrarkostnaður í ár verði um 4,5 milljarðar; um 23 milljónum lægri en í fyrra en um 449 milljónum hærri en 2023. Kostnaðurinn hefur hækkað um rúmlega 10% síðustu þrjú ár.Kostnaður vegna einstakra sendiskrifstofa sveiflaðist almennt milli ára og í flestum tilfellum var hann meiri í fyrra en 2023. Hann lækkaði til að mynda í Berlín, Lu