Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að áætlun um að hleypa rennsli aftur á Druzhba-olíulögnina milli Rússlands og Ungverjalands fyrir lok mánaðar muni standast. Lögnin liggur í gegnum Úkraínu og skemmdist mikið í árás Rússa í janúar, að sögn stjórnvalda í Kænugarði.Málið varð að bitbeini milli Úkraínu annars vegar og Ungverjalands og Slóvakíu hins vegar. Stjórnvöld í ríkjunum, með þá Viktor Orban og Robert Fico í stafni, sökuðu Úkraínu um kúgunartilburði og kröfðust þess að olíurennsli yrði komið af stað.Zelenski sagði í dag að viðgerðum yrði lokið að hluta fyrir lok mánaðar þannig að hún kæmist í gagnið.Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti.EPA / ANDREW KRAVCHENKO