Það verður ekki einungis á bílum sem ferðamenn eiga eftir að streyma að vestustu oddum landsins miðvikudaginn 12. ágúst. Fyrir liggur að þangað mun fjölda skemmtiferðaskipa stefnt sömuleiðis. Mörg leggja þau að landi jafnvel áður en sól rís þennan sama dag, einmitt fyrir þær sakir að hennar verður þar ekki notið í eins og tvær mínútur síðdegis.