Kristrún Frostadóttir er efst á lista yfir þá ráðherra sem hafa staðið sig best á kjörtímabilinu að mati þátttakenda í nýrri könnun Maskínu, en Inga Sæland þykir hafa staðið sig verst. Þegar spurt er hvaða ráðherra finnst þér hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili trónir Kristrún Frostadóttir á toppnum með 21,1 prósent atkvæða. Skiptar skoðanir eru hins vegar á...