Efasemdir um hvort að nýkjörinn þingmaður Borgaraflokksins búi raunverulega í Danmörku hafa sett staðfestingu á úrslitum þingkosninganna þar í uppnám. Atkvæðagreiðsla um málið á að fara fram í danska þinginu í dag en hún átti aðeins að vera formsatriði.