Úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og afsögn hans sem varaformanns flokksins komu flokksbræðrum hans sem eiga sæti í ríkisstjórn mjög á óvart. Þeir segja söknuð að Guðmundi Inga en þvertaka fyrir að ágreiningur sé innan flokksins.Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sá brotthvarf Guðmundar Inga ekki fyrir.„Það er mikil eftirsjá að honum. Ég bara skil þetta ekki. Hann verður bara að útskýra þennan trúnaðarbrest. Ég veit ekki hvaða trúnaðarbrests hann er að vísa til. Hann er alltaf velkominn til og kannski hann komi til baka ef það er hægt að laga þennan trúnaðarbrest sem hann talar um.“Eyjólfur segir ekkert ósætti innan flokksins.Eyjólfur segir óljóst hver taki við sem varaformaður flokksins. „Það hefur allavega enginn hringt í mig ennþá,“Ráðherrar Flokks fólksins segja e