Hið margrómaða kvikmyndahús Palads í miðborg Kaupmannahafnar verður endurnýjað og fleiri hæðum bætt við gangi eftir nýsamþykkt deiliskipulag meirihlutans í loftslags-, tækni- og umhverfisnefnd Kaupmannahafnarborgar sem samþykkt var í gær.Danska ríkisútvarpið DR greinir frá því að lengi hafi verið til umræðu að breyta húsinu. Ekki voru allir á eitt sáttir um hvernig best væri að haga þeim breytingum og Kaupmannahafnarborg bárust alls um 3.000 athugasemdir frá íbúum og hagsmunasamtökum.Með samþykki meirihlutans er deiliskipulagið svo gott sem frágengið en deiliskipulagið verður tekið fyrir í borgarstjórn þar sem búist er við að það verði endanlega samþykkt.Palads kvikmyndahúsið er stærsta kvikmyndahús Danmerkur með 17 sýningarsali og stendur við Vesterport lestarstöðina. Húsið er málað í gla