J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna.AP/AP POOL / Jacquelyn MartinJ.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði að hann væri leiður yfir því að Viktor Orban, fráfarandi forsætisráðherra Ungverjalands, hefði tapað þingkosningunum í Ungverjalandi í gær. Vance sagði þó að hann lofaði því að stjórnvöld í Washington myndu vinna með eftirmanni Orbans, Peter Magyar, leiðtoga Tisza-flokksins.Vance sagðist viss um að þeir myndu vinna vel saman. Varaforsetinn heimsótti Ungverjaland í síðustu viku fyrir kosningarnar og lýsti yfir stuðningi við Viktor Orban.