Foreldrahús hættir starfsemi sinni 1.maí. Framkvæmdastjóri segir ekkert úrræði taka við og skjólstæðingar séu í áfalli.Foreldrahús er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda.Úrræðið hefur verið til í 40 ár og þangað leita um 500 börn, og foreldrar þeirra, árlega, með tilvísun frá barnaverndarþjónustum eða á eigin vegum.Ráðgjafamiðstöðin Foreldrahús lokar 1.maí. Framkvæmdastjóri segir orsökina vera áhugaleysi stjórnvalda á úrræðinu og að skjólstæðingar séu í áfalli. Ekkert sambærilegt úrræði er í boði. MARGRA ÁRATUGA REYNSLA OG TRAUST AÐ TAPAST Berglind Gunnarsdóttir Strandberg er framkvæmdastjóri Foreldrahúss.Hún segir foreldra leita í úrræðið eftir aðstoð, þegar kemst upp að börn þeirra séu byrjuð að fikta við eða nota vímuefni.Foreldrar geta l