Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðal­hlut­verk í ís­lenskri kvik­mynd

„Einu sinni vildi ég að enginn myndi vita að ég væri trans og vera bara venjulegur maður,“ segir Roman Ægir Fjölnisson leiklistarnemi en í kvikmyndinni Ótti stígur hann fram sem aðalleikari og er þar með fyrsti trans maðurinn til að fara með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd. Hlutverkið sem hann leikur er þó ekki trans maður, heldur Arnór, ungur maður sem býr við erfiðar aðstæður, flækist inn í hættulegan heim og þarf að velja sér stefnu í lífinu. Fyrir Roman er það stórt atriði í sjálfu sér. Hann segir mikilvægt að trans fólk fái fjölbreytt hlutverk og sé ekki alltaf skilgreint af kynvitund sinni á skjánum.
Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðal­hlut­verk í ís­lenskri kvik­mynd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta