Þingkosningarnar í Ungverjalandi í gær fara í sögubækurnar, ekki aðeins fyrir metkjörsókn, heldur einnig bestu niðurstöðu sem nokkur stjórnmálaflokkur hefur fengið þar undanfarna áratugi. Tisza flokkur Peters Magyars fær vel yfir tvo þriðju sæta á ungverska þinginu. Ídag kallaði Magyar eftir valdaskiptum svo fljótt sem auðið væri. Hann fór um víðan völl á blaðamannafundinum og kallaði forseta Ungverjalands, Tamás Sulyok strengjabrúðu núverandi stjórnvalda. Hann sagði sömuleiðis að núverandi utanríkisráðherra væri að eyða skjölum um embættisverk sín.Umfjöllun um úrslit þingkosninganna í Ungverjalandi má sjá í spilaranum hér að ofan.