Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flugstjórinn gæti átt yfir höfði sér að missa réttindi, milljónasekt og kæru til lögreglu

Þotan var á leið frá Frankfurt til Keflavíkur en flugstjórinn, sem er frá Vestmannaeyjum, var að kveðja eftir 40 ár í starfi. Hann óskaði eftir breytingu á flugleið við Avians, sem sinnir flugleiðsögn á íslenska flugstjórnarsvæðinu, og sú beiðni var samþykkt.Icelandair sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem segir að lágflugið hafi hvorki verið á vitorði né með heimild stjórnenda félagsins. Það sé litið mjög alvarlegum augum. Atvikið var tilkynnt til lögreglu um helgina og Samgöngustofa hefur tekið það til rannsóknar.Samkvæmt reglum um lágmarksflughæð má ekki fljúga sjónflug í minni hæð en þúsund fetum yfir þéttbýli, tæpum 305 metrum, nema við flugtak og lendingu. Til samanburðar er Heimaklettur, hæsta fjall Vestmannaeyja, 283 metrar. Næsthæsti tindur eyjanna er Blátindur, 273 metrar á hæð
Flugstjórinn gæti átt yfir höfði sér að missa réttindi, milljónasekt og kæru til lögreglu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta