Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loka skíðasvæðinu þrátt fyrir nægan snjó

Einhverjir voru undrandi á að Skíðafélag Dalvíkur tilkynnti um vertíðarlok, því nægur snjór er í Böggvisstaðarfjalli og aðstæður til skíðaiðkunar góðar. Lyfturnar eru þó opnar fyrir skíðaæfingar en hin almenni Dalvíkingur þarf að bíða til næsta veturs til að komast í brekkurnar.Erfið tíð í fyrravetur dró verulega úr tekjum, svo mikið að félagið fékk 10 milljónir fyrirframgreiddar af rekstrarstyrk ársins frá Dalvíkurbyggð. Það sé meginástæða þess að þeir loki núna: Peningurinn sé búinn.
Loka skíðasvæðinu þrátt fyrir nægan snjó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta