Héraðssaksóknari hefur gefið út ákærur á hendur félögunum Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.