„Ekki er allt sem sýnist í Dimmu,“ segir Ingólfur H. Geirdal, hljómsveitarmeðlimur í Dimmu, fyrir hönd sveitarinnar í færslu á Facebook-reikningi sínum. Þar bregst hann við ásökunum Stefáns Jakobssonar, fyrrverandi aðalsöngvara hljómsveitarinnar, um að bassaleikarinn Silli Geirdal og eiginkona hans hafi tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli.Stefán, betur þekktur sem Stebbi Jak, sagði skilið við hljómsveitina eftir 15 ára starf í síðustu viku, en hann hafði verið sýknaður af líkamsárás í Héraðsdómi Reykjaness í sömu viku. Í færslu þar sem hann tilkynnti brotthvarf sitt úr sveitinni sagði hann Silla og eiginkonu hans tengjast þeim sem ákærði hann náið og hafa tekið skýra afstöðu með honum frá upphafi. ANDRÚMSLOFTIÐ EKKI AUÐVELT Ingólfur skrifar fyrir hönd hljómsveitarinnar í færslunni en þe