Maður sem féll í Ölfusá á laugardaginn var úrskurðaður látinn sama dag. Lögreglu barst tilkynning klukkan fjögur um að maður væri á ánni. Lögregla, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar fóru á vettvang og maðurinn var hífður upp og fluttur á slysadeild Landspítalans, þar sem hann var úrskurðaður látinn. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og segist ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.