Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots.Manninum var gert að sök að hafa reynt að taka við tæplega fjórum og hálfu kílói af marijúana sem komið hafði verið fyrir í kassa sem átti að innihalda Airfryer-matvinnslutæki. LÖGREGLA SKIPTI EFNUNUM ÚT FYRIR GERVIEFNI Í dómi Héraðsdóms segir að í janúar 2025 hafi lögreglu borist tilkynning frá tollgæslunni um að pakki sem skráður væri á ákærða hefði verið stöðvaður í tollskoðun og að við skoðun hans hefðu fundist meint kannabisefni. Lögreglan sótti pakkann samdægurs til tollgæslunnar, fjarlægði efnin og skipti þeim út fyrir gerviefni.Daginn eftir sótti ákærði pakkann í vöruhús í Hafnarfirði. Lögregla elti hann þegar hann ók þaðan