Breska rokkhljómsveitin The Rolling Stones hefur gefið út nýtt lag. Langflestir aðdáendur sveitarinnar þurfa þó að bíða aðeins eftir að geta hlustað á lagið því það var aðeins gefið út á vínylplötu og í mjög takmörkuðu upplagi.Hljómsveitin gaf lagið, sem ber heitið Rough and Twisted, út undir dulnefninu The Cockroaches, eða Kakkalakkarnir. Nýja lagið hefur gefið orðrómum um að ný plata sé á leiðinni byr undir báða vængi.Hljómplötuverslunin Sounds of the Universe í London var eina búðin í bresku höfuðborginni sem fékk eintök af nýja laginu. 14 plötur rötuðu í hillur hennar. Í sama húsi hélt The Rolling Stones sínar fyrstu æfingar. VERÐIÐ MÖGULEG VÍSBENDING UM ÚTGÁFUDAG Angela Scott starfsmaður búðarinnar segir í samtali við fréttastofu AFP að starfsfólk Universal Music hafi haft samband