Miðflokkurinn mun ekki bjóða fram lista í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi segir ástæðuna þá að enginn hafi mætt fyrir hönd flokksins í persónu til að staðfesta framboðið. Hann segir skorta sveigjanleika hjá fulltrúum yfirkjörstjórnar sem séu skipaðir af núverandi fulltrúum í sveitarstjórn.