Sigur Peter Magyers og Tisza-flokksins í þingkosningum í Ungverjalandi í gær hefur mikla þýðingu fyrir landið og Evrópusambandið, að mati Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði. Ungverjaland hafi sveiflast töluvert milli þess að vilja vera vestrænt Evrópuríki en líka í hina áttina að harðari valdboðshyggju.Tisza-flokkurinn vann stórsigur í kosningum í gær og tryggði sér um tvo þriðju hluta þingsæta. Sextán ára valdatíð Viktors Orbans er því lokið. Eiríkur segir einkum fjórar ástæður fyrir því að þetta gerist núna. Í fyrsta lagi hafi þrengt að veskinu hjá almenningi í Ungverjalandi, verðbólga sé með því hæsta innan ESB, kaupmáttarrýrnun hafi verið töluverð og það hafi kallað fram óþol meðal almennings.Þessu til viðbótar hafi verið mikil spilling í Ungverjalandi. „Það hefur orðið mei