Gögn um notendur vefsíðunnar Booking.com rötuðu í hendur „óviðkomandi aðila“ eftir gagnaleka hjá bókunarfyrirtækinu. Í frétt Guardian segir að ekki hafi fengist upplýsingar hversu margir viðskiptavinir bókunarþjónustunnar hafi orðið fyrir áhrifum af gagnalekanum. Talsmaður fyrirtækisins segir að tölvuþrjótar hafi ekki komist yfir neinar fjármálaupplýsingar.Í tilkynningu félagsins segir að í ljós hafi komið að óviðkomandi þriðju aðilar hafi komist í upplýsingar um bókanir sem gerðar voru í gegnum vefsíðuna. Strax í kjölfarið hafi vinna hafist við að girða fyrir vandamálið. Þeir viðskiptavinir sem urðu útsettir fyrir gagnalekanum hafi verið látnir vita.Í tölvupósti sem sendur var til viðskiptavina Booking.com segir að tölvuþrjótarnir hafi komist í upplýsingar sem gætu innihaldið nöfn, tölvup