Samgöngustofa hefur tekið lágflug flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjar til rannsóknar. Þetta segir í tilkynningu frá flugfélaginu. Þar segir að lágflugið hafi hvorki verið á vitorði né með heimild stjórnenda félagsins og það hafi verið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu.„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum. Atvikið hefur verið tekið til rannsóknar og mun sú rannsókn leiða frekari niðurstöður í ljós. Við munum að sjálfsögðu aðstoða yfirvöld við þá rannsókn. Þó að við lítum svo á að um stakt tilfelli sé að ræða munum við árétta við okkar starfsfólk það verklag og reglugerðir sem því ber ávallt skylda að fylgja,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.Í yfirlýsingunni segir að lög og reglur sem gildi um flug séu settar í öryggisskyni og starfsfólki Icelandair og