Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segir engan vafa á um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir alveg skýrt um hvað verði kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Einhverjir þingmenn afneiti þeirri staðreynd að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu hafi aldrei verið afturkölluð.Þetta kom fram í svari Þorgerðar Katrínar við spurningu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Þá hafði Guðrún spurt Þorgerði hvort henni þætti ásættanlegt að leggja fyrir þjóðina spurningu sem landskjörstjórn teldi að gæti vakið tortryggni um áhrif á afstöðu kjósenda.Auk þess spurði Guðrún hvort til greina kæmi að endurskoða tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem hún sagði geta haft erfiðleika í för með sér fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu. VILL BJÓÐA UPP Á FLEIRI VALKOSTI
Segir engan vafa á um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta