Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandaríska sjóherinn granda öllum írönskum herskipum sem nálgist herkví hans við íranskar hafnir.Í færslu á Truth Social segir Trump að Bandaríkjaher hafi grandað stórum hluta af skipakosti íranska sjóhersins, alls 158 skipum. Herinn hafi þó ekki ráðist á nokkur hraðskreið árásarskip, „því við töldum þau ekki vera mikla ógn,“ skrifar forsetinn. Hann bætir því við að ef einhver þessara skipa nálgist herkví Bandaríkjahers verði þeim grandað með sömu brögðum og Bandaríkjaher hefur beitt gegn bátum meintra eiturlyfjasmyglara frá Suður-Ameríku.Í gær sagði Trump að lokað yrði fyrir umferð allra skipa til og frá Íran um Hormússund. Lokunin tók gildi klukkan 14 að íslenskum tíma. Áður höfðu Íranar lokað sundinu fyrir skipum ríkja sem þeir skilgreina sem óvinvei