Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Í gæsluvarðhaldi grunaðir um að stinga mann í heimahúsi

Rannsókn á stórfelldri líkamsárás í heimahúsi á Akureyri aðfaranótt föstudags miðar vel, að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Tveir eru í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði fram á laugardag, Íslendingar á þrítugs- og fertugsaldri.Þeir eru grunaðir um að hafa ráðist að manni og valdið honum alvarlegum áverkum. En hinn meiddi hafði stunguáverka og gekkst undir skurðaðgerð vegna þeirra. Til rannsóknar er meðal annars hvort árásin teljist tilraun til manndráps.Ekki fengust upplýsingar um hvort hinn slasaði lægi enn á sjúkrahúsi. Í viðtali um helgina sagði lögregla manninn ekki í lífshættu.Lögreglan segir rannsóknina í hefðbundnum farvegi. Þegar hafa verið teknar skýrslur af málsaðilum, verið sé að rýna í framburð þeirra og frekari skýrslutökur séu framundan.Þegar líður á vikuna kem
Í gæsluvarðhaldi grunaðir um að stinga mann í heimahúsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta