Skoska fyrirtækið Restitution Litigation Limited vinnur að því fyrir hönd namibíska ríkisins að reyna að endurheimta peninga í Namibíumálinu frá Samherja. Fyrirtækið hefur höfðað mál gegn Samherja fyrir breskum dómstólum og reynir fyrirtækið nú að fá allt að einn milljarð dollara, eða meira en 120 milljarða króna, frá íslenska útgerðarfélaginu og tengdum aðilum. Málið er nú til meðferðar fyrir dómi í London.Forstjóri Restitution, Katherine Mulhern, segir að stefnan byggi á því að Samherji hafi með meintum spilltum og meintum ólögmætum hætti haft fé af namibíska ríkinu og namibísku þjóðinni þegar fyrirtækið stundaði fiskveiðar þar á árunum 2012 til 2019. „Málið byggir á því að þessum peningum, sem teknir hafa verið frá namibíska ríkinu og namibísku þjóðinni, skuli skilað. [...] Það sem kemu