Úrskurðarnefnd kosningamála komst í dag að þeirri niðurstöðu að Miðflokkurinn fái ekki að bjóða fram lista í Árborg, vegna þess að honum var skilað inn of seint.Listanum var ekki skilað til kjörstjórnar í Árborg fyrr en eftir að framboðsfrestur rann út í hádeginu á föstudag. Kjörstjórnin hafnaði listanum, en sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndarinnar.Þetta þýðir að í Árborg verða fjórir listar í framboði: Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og óháðir, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn.Selfoss er stærsta þéttbýlið í sveitarfélaginu ÁrborgRÚV / Ragnar Visage