Sextán ára valdatíð Viktors Orban í Ungverjalandi lauk um helgina þegar Tisza-flokkurinn með Péter Magyar í broddi fylkingar vann stórsigur í kosningum í landinu. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórmálafræði og sérfræðingur í þróun þjóðernishyggju og pópúlisma í Evrópu segir að sigur Magyars hafi á endanum orðið enn stærri en búist hafði verið við og að um mikil tímamót sé að ræða.