Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Britney Spears farin í meðferð

Britney Spears hefur verið í sviðsljósinu frá táningsaldri.EPABandaríska söngkonan Britney Spears er komin í vímuefnameðferð. Hún ákvað að leggjast inn á meðferðarstofnun af sjálfsdáðum. Þetta staðfestir talsmaður söngkonunnar í samtali við People.Söngkonan ákvað að fara í meðferð eftir að hún var handtekin vegna gruns um akstur undir áhrifum í síðasta mánuði. Þrjár vikur eru þar til ákæra á hendur Spears verður tekin fyrir í dómssal í Kaliforníu, að því er segir í frétt BBC.Þar er haft eftir talsmanni söngkonunnar að þetta verði vonandi fyrsta skrefið í átt að tímabærum breytingum sem þurfi að eiga sér stað í lífi hennar. „Vonandi fær hún þá hjálp og þann stuðning sem hún þarf.“
Britney Spears farin í meðferð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta