Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjö sóttu um stöðu skólastjóra Víðistaðaskóla

Sjö sóttu um stöðu skólastjóra í Víðistaðaskóla. Meðal umsækjenda er aðstoðarskólastjóri skólans.Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að verið sé að vinna úr umsóknum. Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí eða eftir nánara samkomulagi.Umsækjendur um stöðu skólastjóra voru eftirfarandi: * Arnór Heiðarsson, forstöðumaður * Dagný Vilhelmsdóttir, framhaldsskólakennari * Guðmundur Stefán Gunnarsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi * Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, sviðsstjóri * Hjördís Bára Gestsdóttir, aðstoðarskólastjóri * Íris Anna Steinarrsdóttir, skólastjóri * Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, aðstoðarskólastjóri Skólastjóri Víðistaðaskóla hvarf til annarra starfa í mars eftir að starfsfólk gerði alvarlegar athugasemdir við störf hennar í nóvember.
Sjö sóttu um stöðu skólastjóra Víðistaðaskóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta