Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fór til Ungverjalands til að kjósa og vonast eftir bjartari framtíð

„Mér fannst skylda mín að taka flugvél til Ungverjalands, fljúga yfir Norður-Atlantshafið. Ég vona að við fáum bjartari framtíð og að margt breytist í mennta- og heilbrigðiskerfinu, sem og í hagkerfinu fyrir næstu kynslóð og líka fyrir foreldra okkar og fjölskylduna,“ sagði Mónika Pozár í viðtali við Björn Malmquist fréttamann í gær.Hún er ökuleiðsögumaður á Íslandi og er frá Ungverjalandi. Líkt og fleiri Ungverjar á Íslandi fór hún til heimalandsins til að kjósa í þingkosningunum í gær.Mikil fagnaðarlæti brutust út í gærkvöld þegar ljóst var að Tisza-flokkurinn hefði unnið stórsigur á flokki Viktors Orban sem hefur verið við völd í 16 ár og fólk þusti út á götur höfuðborgarinnar, þeirra á meðal var Mónika sem sendi fréttastofu myndbandið hér fyrir neðan.Þúsundir Ungverja þustu út á götur
Fór til Ungverjalands til að kjósa og vonast eftir bjartari framtíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta