Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mímir beitir sjálfan sig sektum eftir fylleríshótanir

Mímir Kristjánsson, hálfíslenskur þingmaður Rauða flokksins á norska stórþinginu, hefur ákveðið að leggja 10 þúsund norskar krónur inn á góðgerðasamtökin Önsketransporten, það eru um 130 þúsund íslenskar krónur. Í færslu á Facebook segir Mímir að honum finnist hann þurfa að greiða eins konar sekt eftir að lögreglan ákvað að rannsókn lögreglu á hótunum Mímis í garð manns á sjötugsaldri var felld niður.„Eins og margir hafa tekið eftir þá missteig ég mig illa um páskana. Ég sendi alvarlegar hótanir á Messenger til 61 árs manns frá Bryne sem hefur skrifað margar mjög gagnrýnar færslur um Rauða flokkinn og mig á Facebook,“ skrifar Mímir í færslu sinni. Hann hótaði manninum barsmíðum og að siga félögum sínum úr mótorhjólaklúbbnum Vítisenglum á hann.Færslan sem fékk Mími til að fara yfir strikið
Mímir beitir sjálfan sig sektum eftir fylleríshótanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta