Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Peter Magyar harðorður í garð fráfarandi stjórnar Ungverjalands

Peter Magyar við upphaf blaðamannafundar í Búdapest í dag.RUV/Björn MalmquistPeter Magyar, leiðtogi Tisza flokksins í Ungverjalandi var með harða gagnrýni á Viktor Orban forsætisráðherra og Fidez-flokkinn sem tapaði þingkosningunum í gær. Magyar sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Búdapest að Péter Szijjártó núverandi utanríkisráðherra væri nú að tæta skjöl í utanríkisráðuneytinu eftir niðurstöður kosninganna í gær; hann líkti stjórn Orbans við glæpasamtök og sagði að Tamás Sulyok forseti Ungverjalands væri strengjabrúða stjórnvalda; Sulyok ætti að kalla saman ungverska þingið sem fyrst, afhenda Magyar umboð til stjórnarmyndunar og segja síðan af sér.
Peter Magyar harðorður í garð fráfarandi stjórnar Ungverjalands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta