Bandaríkjaforseti hefur hótað að loka fyrir alla umferð skipa til og frá Íran um Hormússund í dag. Lokunin á að taka gildi klukkan 14:00 að íslenskum tíma.Íranar höfðu áður lokað sundinu fyrir skipum ríkja sem þeir skilgreina sem óvinveitt. Viðræður Bandaríkjanna og Írans í Pakistan um helgina báru ekki árangur og er talið að með hótunum sínum ætli Trump að þvinga Írana til að opna sundið.Siglingaleiðin er mikilvæg fyrir olíuflutninga og eldsneytisverð hefur hækkað síðustu vikur vegna stríðsins.Ríkin sömdu um fjórtán daga vopnahlé í síðustu viku og ekki er annað vitað en að það sé enn í gildi.Flutningaskip við Hormússund. Séð frá Khor Fakkan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 11. mars 2026.AP / Altaf Qadri