Fangelsismálastjóri tekur undir með Fangavarðafélagi Íslands um að ástandið í fangelsum landsins sé óviðunandi. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að fangelsin séu yfirfull og ekki hægt að tryggja öryggi fanga og starfsfólks.„Það er hægt að taka undir þessar áhyggjur og í sjálfu sér ekkert hægt að rengja það sem þarna kemur fram. Þetta er allt saman satt og rétt,“ segir Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri.Vegna kröfu um að allt pláss sé nýtt dvelja fangar í klefum þar sem kallkerfi virkar ekki. Birgir tekur undir að það sé óviðunandi og segir að það verði að finna lausn til framtíðar.„Þetta er náttúrulega bara hluti af stöðunni á aðbúnaði við fangelsið Litla-Hraun sem er bara komið mjög til ára sinna.“Í yfirlýsingu vekur Fangavarðafélagið einnig athygli á því að vegna plássleysis gis