Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Páfi segist ekki óttast Trump

Leó XIV páfi segist ekki óttast stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og að hann ætli að halda áfram að tala gegn stríði. Bandaríkjaforseti gagnrýndi páfa í samtali við blaðamenn í gær og í langri færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Það gerði Trump eftir að páfi bað fyrir friði á laugardag.Leó hélt í dag í sína fyrstu heimsókn til Afríku. Hann ræddi við fjölmiðla um borð í flugvél sinni á leiðinni til fyrsta áfangastaðarins, Alsír. „Ég er ekki stjórnmálamaður,“ sagði Leó við fjölmiðla og bætti því við að hann hefði engan áhuga á að rökræða við Donald Trump. Hann myndi þess í stað halda áfram flytja boðskap friðar. HEFUR GAGNRÝNT INNFLYTJENDASTEFNU TRUMPS Biskupar kaþólsku kirkjunnar, til að mynda á Ítalíu og í Bandaríkjunum, hafa komið Leó til varnar eftir gagnrýni Trumps. Leó
Páfi segist ekki óttast Trump

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta