Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að lækka gjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins um þrjú prósent um mánaðamót. Í tilkynningu frá Fjarðabyggð segir að með þessu leggi sveitarfélagið sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa. Bæjarráð segir að svigrúm sé til lækkunar vegna bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar. Um leið eru stjórnvöld hvött til að grípa til sambærilegra aðgerða með endurskoðun gjaldskráa og lækkun álagna þar sem svigrúm er til staðar. 150 milljóna króna afgangur var af rekstri sveitarsjóðs í fyrra og 850 milljónir þegar fyrirtæki sveitarfélagsins eru talin með.Frá Eskifirði.Eskifjörður / RÚV - Rúnar Snær Reynisson