Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ræða eldsneytislækkun og afnám línuívilnunar

Fyrsti þingfundur Alþingis eftir páska hefst klukkan þrjú. Þrjú mál eru á dagskrá fundarins sem hefst með óundirbúnum fyrirspurnum. Fyrsta umræða verður um tvö stjórnarfrumvörp. Annað snýr að tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti til að sporna gegn verðbólgu sem ríkisstjórnin kynnti á föstudag. Frumvarpið verður tekið til fyrstu umræðu í dag. Síðasta málið er frumvarp innviðaráðherra um að fella niður línuívilnun og jöfnunarheimild vegna skel- og rækjukvóta. Frumvarpið hefur sætt gagnrýni. Níu útgerðir á Vestfjörðum sögðu hættu á verulegri byggðaröskun. Ráðherra segir ívilnunina hafa verið tímabundna ráðstöfun fyrir áratugum.Borð þingmanns í þingsalnum.RÚV / Ragnar Visage
Ræða eldsneytislækkun og afnám línuívilnunar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta