Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tugþúsundir fögnuðu á götum Búdapest

Mikil fagnaðarlæti brutust út í Ungverjalandi í gærkvöld þegar ljóst varð að Tisza-flokkurinn hefði hlotið meirihluta atkvæða í þingkosningum. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá fagnaðarlæti í Búdapest. Fólk sem mættist í rúllustigum jarðlestarstöðvar fagnaði og gaf hvert öðru fimmu. Tugir þúsunda þustu út á götur borgarinnar til að fagna og líf og fjör var þar í alla nótt.Stjórnarandstöðunni var spáð sigri í kosningunum en það kom jafnvel stuðningsmönnum Tisza-flokksins á óvart hversu afgerandi sigurinn varð. Flokknum tókst að tryggja sér um tvo þriðju hluta þingsæta.
Tugþúsundir fögnuðu á götum Búdapest

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta