Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Síminn situr uppi með sektina

Hæstiréttur hafnaði beiðni Símans sem vildi fá að áfrýja dómi Landsréttar um sektargreiðslu vegna sölunnar á Mílu, sem þá var dótturfélag Símans.Seðlabankinn lagði 76,5 milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann þar sem hann þótti hafa brotið gegn lagaákvæðum um innherjaupplýsingar. Það gerðist þegar fyrirtækið bauð fjórum hugsanlegum kaupendum að senda inn skuldbindandi, fullfjármagnað og skilyrðislaust tilboð í Mílu. Seðlabankinn taldi að við þetta hefðu orðið til innherjaupplýsingar sem hefði átt að birta opinberlega eða fresta í samræmi við ákvæði laga.Síminn höfðaði mál til að fá úrskurðinn ógiltan en tapaði í héraði og Landsrétti.Síminn höfðaði mál en tapaði bæði í Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti.RÚV / Ragnar Visage
Síminn situr uppi með sektina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta