Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt sem beindist gegn fyrrverandi eiginkonu hans og tengdaföður.Lögreglan á Suðurnesjum gaf ákæruna út og birti hana í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hafðist uppi á manninum.Hann er ákærður fyrir fjárdrátt og til vara umboðssvik fyrir að hafa stofnað bankareikning í nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar. Að því er fram kemur í ákæru komst maðurinn yfir rafræn skilríki konunnar og notaði þau án hennar vilja og vitundar til að stofna reikninginn. Hafandi gert það borgaði hann Heimstaden tvo reikninga upp á 5.259 krónur en var þó stórtækastur í því að stofna yfirdrátt og millifæra á sjálfan sig 1.141.237 krónur.Lögregla segir að með þessu hafi maðurinn dregið sér fé af reikningum konunnar, kastað eign sinni á fjármuni hennar og notað þá