Dómsmálaráðuneytið hefur framlengt frest til að sækja um embætti sýslumanns landsins alls um viku. Fresturinn átti að renna út á morgun en verður nú til 21. apríl.Embættið tekur til starfa um áramót þegar níu landshlutabundin sýslumannsembætti verða lögð niður og eitt sýslumannsembætti á landinu öllu tekur gildi. Skipað verður í embættið til fimm ára. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipar fyrsta sýslumann landsins.RÚV / Ragnar Visage